← Til baka í uppskriftir

Sörur

Kökur

Hráefni

3 stk Eggjahvítur
312 dl Flórsykur
100 g Hakkaðar möndlur (má nota 200g ef líkar við möndlur)

Aðferð

Stífþeyta eggjahvítur. Blanda hökkuðum möndlum og flórsykri varlega saman við.

Baka við 180 °C í ca. 10 mín.

Krem

Hráefni

3 stk Eggjarauður
1 dl Sýróp (Lyle's golden syrup, í grænni dós)
150 g Smjörlíki/smjör
2 msk Nesquik
1 tsk Vanilludropar
300-400 g Rjómasúkkulaði (brætt og sett á eftir að kremið er sett á kökurnar)

Aðferð

Hræra eggjarauður vel saman. Hella sýrópi í mjórri bunu út í meðan hrært er. Setja síðan smjörið og hræra vel. Bæta Nesquik og dropum út í og hræra vel.

Samsetning

Setja kremið á kökurnar með teskeið þegar kökurnar eru orðnar kaldar. Setja í frysti.

Bræða 300-400 g af rjómasúkkulaði í vatnsbaði. Dýfa kremi ofan í súkkulaði og setja aftur í frost. Mikilvægt að kremið sé frosið til að þetta gangi.